Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinstri dálkur


Gagnasvæði

Blogg

1.júlí 2011

Ferðin til Phnom Penh

Eftir að hafa skoðað flest það sem skiptir máli hérna í Siem Reap ákváðum við að leita leiða til að komast niður eftir til Phnom Penh, þar sem okkur langaði að sjá Killing Fields og fleira sem er þar að finna.

 

Díluðum við Gana "stórvin" okkar, eins og mætti kalla hann eftir að hafa notið þjónustu hans flesta dagana okkar hér í Siem Reap, um að skutla okkur niður eftir.  Hann var meira en til í það og setti upp 2ja daga plan fyrir okkur, fyrir hóflega upphæð. Um er að ræða 350 km akstur í hvora átt og tók ferðin svona um 4-5 tíma.

 

Lögðum af stað snemma, til að vera komnir tímanlega til Phnom Penh og geta nýtt báða dagana sem best.  Leiðin þangað var bara nokkuð skemmtileg, reyndar sama umhverfið nánast alla leið.  Lítið annað að sjá en frumstæð hús inn á milli trjánna, fólk að reyna selja eitthvað í vegkantinum, já og svo hrísgrjónaakra inn á milli.  Svo er nátturulega umferðin ákveðin upplifun út af fyrir sig, á götunum eru allar gerðir farartækja, allt frá hestvögnum upp í hummera.  Virðist ekki skipta neinu máli hvar maður er á veginum, já eða hvort það séu 1-2-3-4 farartæki hlið við hlið.  Eina almenna reglan virðist vera að nota flautuna mikið.  Menn virðast heldur ekki vera að kippa sér mikið upp við framúrakstur hérna.  T.d. að taka fram úr vörubíl með blússandi umferð á móti, þá er bara flautað og látið sig gossa, en það virðist á einhvern furðulegan hátt bara ganga upp :S.

 

En allavega, vorum komnir til Phnom Penh upp úr kl 2, fengum okkur að borða á einhverjum mjög vafasömum veitingastað sem Gana valdi.   Einhver local drullubúlla, maturinn bragðaðist þo alveg allt í lagi, en maður hafði þó á tilfinningunni allan tímann að einhver okkar ætti eftir að fá í magann eftir þetta.  Svo varð þó ekki raunin á endanum :).

 

Svo var bara komið sér fyrir á hóteli í miðbænum, alveg við National Museum, og svo bara farið strax út að skoða.  Var þó ekki margt sem við vorum að sækjast eftir í þessari borg, enda þannig lagað séð ekki mikið að sjá.

 

Við byrjuðum á því að skoða höllina ( Royal Palace ) og því næst National Museum.  Svo fórum við og skoðuðum styttuna af henni Penh, sem borgin er skírð eftir og hæðina sem styttan horfir yfir ( Phnom-hæðina ).  Þaðan kemur nafnið Phnom Penh - Hæðin hennar Penh.

 

Um kvöldið var svo bara farið út að borða og labbað um miðbæinn.  Urðum fyrir frekar miklum vonbrigðum með hann þar sem það var bara nákvæmlega ekkert að gerast þarna, þrátt fyrir að við værum staddir í 2.5 milljón manna borg.  fórum því bara snemma upp á hótel að sofa.

 

Gana vildi leggja af stað 7 eða 8 að skoða Killing fields og fangelsið (Genocide Museum), en við harðneituðum og féllumst á að 10 væri mun eðlilegri tími.  Við ætluðum hvort eð er ekki að gera neitt annað þennan daginn en að skoða þessa 2 staði og keyra aftur til Siem Reap.  Hann féllst á það.

 

Það getur seint talist mikil skemmtun að skoða þessa 2 staði, en engu að síður ágætt að vera búinn að koma þangað.  Maður upplifir þá grimmd sem til er í heiminum mjög vel á svona stöðum, enda voru hinir rauðu Khmerar Pol Pots engir sérstakir sæmdarmenn.  Útrýmingar þeirra á Víetnömum og í raun öllum þeim sem voru á móti því sem rauðu Khmerarnir stóðu fyrir voru hreint út sagt hræðilegar.  Til að tryggja enn frekar að sameind myndaðist meðal fanga, var vinum og ættingjum skipulega skipt upp og sumir drepnir, en aðrir sendir annað til að vinna þrælkunarvinnu á ökrum og við aðrar framkvæmdir.  Fjöldagrafirnar í Killing Fields og pyntingarbúðirnar í fangelsinu bera alls þess vitni.  Það er eiginlega alveg ótrúlegt að þessir atburðir hafi átt sér stað fyrir ekki meira en 40 árum.   Og enn ótrúlegra að margir af þeim sem stóðu fyrir þessu, hafa enn ekki hlotið dóm og sumir hverjir ganga lausir um götur Kambódíu.  Lengi vel horfði svo heimurinn á þetta og kaus að líta frekar í hina áttina.  Hér er sögustundarkorninu formlega lokið og yfir í annað.  

 

Lögðum við svo af stað aftur til Siem Reap upp úr 2.  Eiginlega um leið og við lögðum af stað, þyngdi hratt yfir og kom þetta líka alveg skíta-rigningarveður og var eiginlega meira og minna alla leið til Siem Reap, með tilheyrandi ausandi rigningu, þrumum og eldingum.   Ágætt að eyða svona degi bara að mestu í bíl :).

 

Kvöddum svo Kambódíu um kvöldið að íslenskum hætti.  Fórum í bargötuna og sýndum liðinu hvernig hlutirnir eru gerðir heima á Íslandi :)

 

Daginn eftir kom svo Gana galvaskur og fór með okkur upp á flugvöll.  Stoppuðum stutt fyrir utan Angkor Wat, bara til að taka nokkrar myndir úr fjarska, sem við höfðum misst af þegar við vorum að skoða það nokkrum dögum áður.

Myndaalbúm


Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía

Athugasemdir

1
Toni
8.júlí 2011
Shitt thetta er awesome hjá ykkur :D
       


Leiðarkerfi í fæti

Stjórnborð


Floating Village